
Þingmaður sunnlendinga - Ásta Lóa Þórsdóttir
Þingmenn sunnlendinga hafa fengið boð um að koma í Uppsveitakastið. Fyrst til að mæta var Ásta Lóa Þórsdóttir, þingflokksformaður Flokks fólksins og fyrsti þingmaður suðurlands. Ásta Lóa hafði frá mörgu skemmtilegu að segja um það sem hefur á daga hennar drifið. Uppvöxturinn í Reykjavík og síðan Mosfellssveit, Kvennaskólinn, Suður- Afríka og margt fleira. Í eftirköstum hrunsins tók hún síðan upp nýtt hlutverk þegar hún fór að berjast fyrir heimilin gegn bankakerfinu. Þaðan lá leið hennar síðan á Alþingi fyrir Flokk fólksins þar sem hugsjónirnar um bættan hag heimilanna halda áfram að eiga hug hennar.















