
Þurrkar, leysingar og vatnsáramót
Hvers vegna hefst vatnsárið 1. október og hvaða áhrif hafa veður og úrkoma á raforkuvinnslu? Hörður Bragi Helgason, sérfræðingur í þróun vatnsafls hjá Landsvirkjun, fer yfir óvenjulegt vatnsár sem einkenndist af miklum þurrkum framan af, breytilegum leysingum og úrkomusömu hausti. Hann segir einnig frá því hvernig vatnafræðileg líkön og gervigreind nýtast við að spá fyrir um rennsli í ám og rifjar upp hvernig áhuginn á vatnafræði kviknaði á bökkum Lagarfljóts.













